Um Tal

Tal, IP fjarskipti ehf, er þriðja stærsta fjarskiptafélagið á Íslandi og fer ört vaxandi.

Tal varð til í kjölfar sameiningar á Hive og Sko en hvort félag um sig hafði markað sér sterka stöðu á íslenskum fjarskiptamarkaði, á sitt hvorum vettvangi. Tal hefur frá upphafi haft frumkvæði að því að bjóða nýjar þjónustuleiðir á lægra verð á interneti, heimasíma og farsímaþjónustu og þannig stuðlað að aukinni samkeppni á fjarskiptamarkaði.

Sem dæmi má nefna var Tal fyrst allra fjarskiptafélaga til að bjóða íslenskum neytendum ótakmarkað niðurhal gagna. Með tilkomu Tal lækkaði verð á ADSL internetþjónustu um allt að 70% enda virtist fyrir tilkomu Tals lítil áhugi á samkeppni milli tveggja aðila á internetmarkaðnum á Íslandi. Tal var jafnframt brautryðjandi að lækkun á farsímaverðum en félagið bauð frá upphafi lægra verð á SMS og eitt verð á símtölum óháð því hvort hringt var í heimasíma eða GSM, innan kerfis eða utan. Þjónusta Tal hefur því fallið í góðan jarðveg hjá íslenskum neytendum allt frá upphafi.

Tal ætlar sér umtalsverða hlutdeild á íslenska fjarskiptamarkaðinum og mun bjóða neytendum heildarlausnir í fjarskiptum. Áhersla verður lögð á sjálfstæði félagsins og því er ætlað að veita öðrum fjarskiptafyrirtækjum harða samkeppni. Tal mun leggja áherslu á góða þjónustu, einfalt vöruframboð og gagnsæja verðlagningu sem ætlað er að skila lægra verði til neytenda.


Þjónustuver: 1817