Markmið okkar er lægra verð
Markmið Tals er að viðskiptavinir borgi sem allra minnst fyrir síma, net og sjónvarpsþjónustu.
Hvernig förum við að því?
Við erum öðruvísi: Tal leigir afnot af bestu kerfum stóru símafyrirtækjanna og selur áfram til viðskiptavina sinna á lægra verði en stóru fyrirtækin bjóða. Þetta getum við vegna þess að við eyðum litlu í auglýsingar, erum með minni yfirbyggingu og lægri rekstrarkostnað.
Hvernig spörum við saman?
Við leysum úr bilunum í síma: Ef sími, net eða sjónvarpsþjónusta virka ekki færðu beint samband við tæknimann hjá Bilanavakt í síma 1817. Tæknimenn okkar einbeita sér að því að laga allar bilanir hratt og vel en svara ekki öðrum fyrirspurnum. Þannig færð þú hraða þjónustu þegar mikið liggur við. Þjónustuviðmið bilanvaktar Tals miðast við að viðskitpavinum sé svarað í bilanasíma innan tveggja mínutna. Kappkostað er við að hafa þennan tíma sem lægstan hverju sinni.
Við notum tölvupóst: Ef þú vilt koma í viðskipti við Tal, hefur fyrirspurnir um reikninga, breytingar á þjónustu eða annað sem ekki þarf áríðandi úrlausn sendir þú okkur fyrirspurn með tölvupósti sem við svörum á dagvinnutíma. Þjónustuviðmið þjónustuborð Tals miðast við að viðskiptavinum sé svarað með símtali eða tölvupósti eigi síður en næsta virka dag. Kappkostað er við að hafa þennan tíma sem lægstan hverju sinni.
Við notum netspjall: Þú getur fengið skjót svör við einföldum fyrirspurnum með því að eiga við okkur netspjall á www.tal.is.
Við rekum litlar verslanir: Ef þú vilt hitta okkur persónulega og ræða málin tökum við glöð á móti þér í verslunum okkar í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi á Akureyri. Þar og í vefverslun okkar á www.tal.is getur þú líka skoðað úrval símtækja í boði.
Hvers vegna er þjónustan svona?
Vegna þess að við viljum spara þér tíma, ferðir og peninga.
Gott samband skiptir máli. Við viljum leysa úr bilunum sem koma upp hjá þér hratt og vel.
Það tekur augnablik að senda tölvupóst. Ekki eyða tíma í að bíða í símanum ef ekkert er bilað hjá þér. Sendu okkur frekar tölvupóst og við vinnum í málinu á meðan þú gerir eitthvað skemmtilegra.
Við viljum lækka reikninginn þinn. Það er dýrt að reka símaver fyrir almennar fyrirspurnir frá morgni til kvölds. Við leggjum ekki slíkan kostnað á reikninginn þinn heldur svörum við almennum fyrirspurnum á dagvinnutíma.
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
| Nafn |
IP Fjarskipti ehf |
| Kennitala |
681201-2890 |
| Skrifstofur |
Suðurlandsbraut 24 |
| Póstnúmer |
108 Reykjavík |
| Virðisaukaskattsnúmer |
83163 |
| Opinber skráning |
Firmaskrá |