BARCODE SCANNER
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI



Skannaðu strikamerki á geisladiskum, bókum eða öðrum vörum og láttu Android símann þinn finna upplýsingar um vöruna á netinu. Þú getur fundið gagnrýni um vöruna, verð á helstu vefverslunum eða stakar greinar sem að fjalla um vöruna eða eitthvað henni tengt. Þú getur líka notað forritið til að skanna svokallaða QR kóða líkt og birtast hérna við með öllum forritunum sem við mælum með. Þú skannar strikamerkið sem að fylgir hverju forriti og síminn sækir það sjálfkrafa í Android Market.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Barcode Scanner.


DOLPHIN HD
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI



Dolphin vafrinn er einn allra besti vefvafrinn fyrir farsíma. Hann er hraður, áreiðanlegur, með flettiflipum, ábendingum og styður fjölsnertiskynjara. Þótt svo að vefvafrinn sem að kemur með Android stýrikerfinu sé ágætur slær Dolpin HD hann og aðra vafra út í samanburði á eiginleikum. Dolphin er einfaldlega sneggri en hinir.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Dolphin HD.


SCANDINAVIAN KEYBOARD
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Lítið sem að hægt er að segja um þetta forrit annað en að þetta er íslenskt lyklaborð fyrir Android síma. Allir séríslenskir stafir fylgja lyklaborðinu og svo er hægt að sækja viðbót fyrir það sem er íslensk orðabók. Orðabókin leiðréttir þig þegar þú ert að slá inn setningar og flýtir fyrir þér með tillögum að orðum sem að þú ert að byrja að slá inn. Viðbótina má finna í Market og heitir Icelandic dictionary.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Scandinavian Keyboard.


CHOMP SMS
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


ChompSMS er besta smáskilaboðaskjóðan fyrir Android síma. Í raun er þetta forrit betra heldur en það sem kemur innbyggtí símunum. Ein af megin ástæðunum er sú að skilaboðaforritið sem að er í Androis símum er alltaf í gangi og gengur því á rafhlöðuna, þetta á við Android uppfærslur fram að 2.1 Eclair. Ef þú sendir mikið af SmS skilaboðum þá er þetta forrit að fara að verða besti vinur þinn. Forritið bíður upp á spjall á SmS formi með mynd af þeim sem þú ert að spjalla við, undirskrift í SmS skilaboð og læsingu með leyninúmeri svo eitthvað sé nefnt.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Chomp SmS.


3G WATCH DOG
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Þetta forrit heldur utan um gagnamagnið sem að þú ert að nota í gegnum 3G á farsímanum þínum. Þú getur gefið þér ákveðin skilyrði fyrir því hversu mikið gagnamagn þú leyfir þér á dag, viku eða mánuði. Forritið gefur þér áætlun um hversu mikið gagnamagn þú munt verða búinn með í lok tímabils út frá meðalnotkun þinni dag frá degi.

Það besta við 3G Watchdog er að forritið sýnir þér myndrænt hvað það er sem að eykur niðurhal þitt í gegnum 3G. Að horfa á nokkur Youtube myndskeið, streyma tónlist af netinu og að sækja forrit frá Android Market í gegnum 3G getur aukið niðurhal þitt mjög hratt. En með 3G Watchdog áttu auðveldara með að sjá hvernig notkun þín hefur áhrif á niðurhal og því áttu auðveldara með að breyta notkunnarmynstrinu og lækkað kostnaðinn. Forritið lætur þig einnig vita þegar að þú ert að verða búinn með gagnamagnið sem þú settir þér fyrir ákveðið tímabil.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér 3G Watchdog.


SOCCER SCORES
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Fylgistu fótbolta? Með þessu forriti geturðu fylgst með stöðunni í öllum knattspyrnudeildum heims. Forritið birtir þér stöðu deilda, leikja og efstu markaskorara auk þess sem að þú getur fylgst með leikjum sem eru í gangi hverju sinni. Þú getur skoðað fréttir úr deildunum sem þú fylgist með, séð yfirlit yfir næstu leiki í deildunum og fleira. Veldu þitt lið og forritið lætur þig vita af öllu sem tengist því.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Soccer Scores.


YOUR GOLF
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Fyrir alla golfara. Með þessu forriti geturðu sótt yfirlit af 28.000 golfvöllum í heiminum og sá grunnur fer ört stækkandi. Skráðu höggin þín, hvaða kylfu þú notar og hvar boltinn lendir. Forritið tengist GPS tækninni í Android símanum og gefur þér yfirlitsmynd af brautinni, fjarlægð frá flötinni og heldur sögu yfir hvernig þú leystir síðast úr hlutunum. Með GPS tækninni geturðu beðið forritið að finna fyrir þig golfvöll í næsta nágrenni við staðsetningu þína. Þú getur svo reiknað út forgjöfina þína eftir hringinn, deilt honum með vinum þínum og vistað hann á símann.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Your Golf.


ENDOMONDO
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Stundarðu hlaup, göngu, skíði eða aðrar íþróttir þar sem þú ferðast ákveðna vegalengd? Endomondo gerir upplifun þína enn meira spennandi. Á www.endomondo.com geturðu skráð og fylgst með öllum þínum íþróttaiðkunum. Þar geturðu fundið fólk sem að hefur sömu áhugamál, fengið innblástur frá þeim og fylgst með þeirra íþróttaiðkunum, jafnvel á meðan að á þeim stendur. Hvort sem að þú vilt fylgjast með og skrásetja eigin árangur hverju sinni eða staðsetja þig meðal stærri hópa þá er Endomondo nýi íþróttafélagi þinn.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Endomondo.


GOOGLE SKY MAP
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Þetta forrit lætur drauma stjörnuáhugamannsins rætast. Forritið notar gögn frá Google Sky og GPS tækninni í Android símanum þínum, forritið umbreytir skjánum á símanum í glugga inn til himnanna. Ef þú beinir símanum til himins og færir hann til færðu rauntíma upplýsingar um stjörnur, plánetur og stjörnumerki sem símanum er beint í áttina að. Þú getur líka rennt fingrinum yfir skjáinn og skoðað þannig himingeiminn að vild.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Google Sky Map.


GOOGLE GOGGLES
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Þetta litla forrit gerir þér kleift að taka mynd af einhverju í umhverfi þínu og forritið leitar samstundis að hlutnum á Google. Google Goggles notar líka GPS tæknina í Android símanum þínum og finnur til dæmis hvar þú getur nálgast vöru sem að þú ert að leita að. Það er svo stefnan með Google goggles að geta tekið mynd af texta á hvaða tungumáli sem er og fá til baka þýðingu á því tungumáli sem að hentar þér. Þetta er lítið og skemmtilegt forrit til að leika sér með og monta sig af Android símanum sínum.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Google Goggles.


GOOGLE TRANSLATE
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Notaðu Google í Android símanum þínum með þessu forriti til að þýða texta á yfir 50 tungumál. Þú getur slegið inn texta eða lesið inn texta og fengið hann þýddan á því tungumáli sem að þig vantar að þýða yfir á hverju sinni. Snilldar forrit til að grípa í erlendis og slá um sig með fleigum setningum á tungumáli heimamanna.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Google Translate.


ANDROID LIGHTSABER
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Láttu “Trekkarana” hafa það óþvegið eða sýndu Iphone notendum í tvo heimana með Star Wars Ligtsaber í Android símanum þínum. George Lucas hefur gefið þessu forriti blessun sína og skiljanlega þar sem að síminn breytist í Lightsaber með einum smelli. Þú getur valið á milli fimm mismunandi Star Wars persóna, sem að allar hafa sinn lit á geislasverðinu, smelltu svo á skjáinn og lúðaðu þig upp.

Sveiflaðu símanum eins og geislasverði með viðeigandi hljóðum, geislasverðið blikkar og það heyrast smellir og sprengingar þegar þú berst við ósýnilegan Darth Wader. Þú getur meir að segja spilað dramatíska stríðsmúsík úr Star Wars á meðan að þú lúðast með geislasverðið þitt, allt með einum smelli. May the force be with you.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Android Lightsaber.


EVERNOTE
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Ef þú sérð eitthvað, heyrir eitthvað eða dettur eitthvað í þá getur Evernote hjálpað þér að muna það. Taktu upp hljóðskrá, taktu mynd, skrifaðu hjá þér punkta eða taktu afrit af tölvuskjánum hjá þér. Evernote geymir allar þínar hugmyndir, hugsanir og punkta sem að annars færu á gulan miða og gætu týnst. Allt sem þú vistar er flokkað og gert aðgengilegt fyrir þig svo það sé auðvelt að finna aftur.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Evernote.


REPLICA ISLAND
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Stýrðu vélmenni í gegnum 40 mismunandi erfið borð í leit þinni að leynilegum orkugjafa á dularfullri eyju. Leikurinn er flottur í útliti og spilun þar sem hann nýtir alla eiginleika Androis símans þíns.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Replica Island.


JEWELS
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Einfaldur en mjög vel gerður leikur þar sem að þú raðar saman þremur samstæðum geimsteinum, klassík. Varúð leikurinn er mjög ávanabindandi og þú getur keppt við stigamet spilara allstaðar að úr heiminum.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Jewels.


TALKING TOM CAT
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI


Köttur sem talar? Talking Tom endurtekur allt sem þú segir með skrækri röddu. Þú getur klappað honum, potað í hann, kýlt hann, gefið honum mjólk að drekka, þú getur meir að segja tosað í skottið á honum. Skemmtu þér með Talking Tom sem að slær í gegn í öllum partýum. Börn á öllum aldri elska Talking Tom. Svo geturðu líka tekið upp það sem þú lætur Tom endurtaka og sett inn á facebook og youtube.

Farðu í Market á 3G Android farsímanum þínum frá Tali og sæktu þér Talking Tom Cat.


Mitt GSM


Gleymt lykilorð

Fylla Frelsi


Áfram

Tal | Kringlan, Smáralind og Glerártorg | Skiptiborð 445 1600 | Faxnúmer 445 1601 | Bilanavakt 1817 | tal@tal.is